15
IS
Ráð fyrir öryggi og umhirðu
Ÿ Lesið leiðbeiningarnar áður en grillið er notað!
Ÿ Fylgið öllum viðvörunum og leiðbeiningum við notkun grillsins. Ef
leiðbeiningarnar eru ekki lesnar eða ef þeim er ekki fylgt getur
það leitt til alvarlegs líkams- og/eða eignatjóns.
Ÿ Geymið leiðbeiningarnar til að fletta upp í þeim síðar.
Ÿ Ef spurningar vakna við lestur á leiðbeiningunum skal hafa
samband við söluaðila á viðkomandi stað.
Ÿ Notið ekki grillið nema það sé fullsamsett og allir íhlutar þess hafi
verið festir og hertir.
Ÿ Aðeins til heimilisnota. Notið ekki við eldamennsku í atvinnuskyni.
Leiðbeiningar fyrir notkun og uppkveikju
Ÿ Grillið er hannað til að vera notað með viðarkolamolum eða
viðarkolastykkjum. Notið ekki meira en 1,0 kg af viðarkolum.
Ÿ Setjið grillið upp á öruggum stað.
Ÿ Hitið upp grillið og haldið eldsneytinu rauðglóandi í að minnsta
kosti 30 mínútur áður en eldamennska hefst.
Ÿ Fyrir fyrstu eldamennsku á grillinu:
b. Kveikið lítinn eld í kolakassanum.
c. Lokið lokinu þegar logarnir sjatna, opnið loftop um ¼ úr
snúningi. Brennslan ætti að vara í að minnsta kosti 30 mínútur.
1.Raðið viðarkolum í þríhyrningslaga köst í miðju kolakassans.
2.Kveikið í viðarkolunum með hentugum eldkveiki sem uppfyllir
EN1860-3. Kveikið ávallt eld með grilllokið opið. Hafið lokið opið
á meðan það logar í viðarkolunum.
3.Setjið aldrei kveikilög á heit viðarkol því eldur kann að gjósa upp og
valda meiðslum.
4.Þegar viðarkolin hafa myndað öskulag og logarnir sjatnað (12-15
mínútur) skal jafna kolunum út í kolakassanum.
5.Setjið grillristarnar aftur á og lokið lokinu til að hita
eldunaryfirborðið.
6. Hefjið ekki eldamennsku fyrr en öskulag hefur myndast á kolunum.
VARÚÐ
• Sumir hlutar kunna að vera með skarpar brúnir! Notið
hlífðarhanska ef þörf krefur.
• Flest allt yfirborð grillsins er heitt við notkun. Sýnið ýtrustu
varúð. Snertið ekki málmhluti á grillinu fyrr en það hefur kólnað
alveg niður til að koma í veg fyrir brunasár, nema hlífðarhanskar
séu notaðir.
• Handföng eldunargrindar eru heit við notkun. Hinkraðu þar til
grillið hefur kólnað áður en þú fjarlægir eldunargrindina eðan
notaðu ofnhanska til að fjarlægja eldunargrindina.
VIÐVÖRUN
• VIÐVÖRUN! Grillið verður mjög heitt, færið það ekki við
notkun.
• Notið ekki innandyra! Grillið er aðeins til notkunar utandyra.
• Notið grillið á svæði með góðri loftræstingu.
• VIÐVÖRUN! Notið ekki spritt eða bensín til að kveikja eða
viðhalda eldi! Notið aðeins grillkveikivökva sem uppfylla
EN1860-3!
• VIÐVÖRUN! Haldið börnum og gæludýrum í burtu.
• Setja skal grillið upp á traustu og jöfnu undirlagi fyrir notkun.
• Notið ekki í minna en 1 m fjarlægð frá eldfimum mannvirkjum
eða yfirborði.
• Öskukassinn verður að vera alveg settur í við notkun. Ef hann
er ekki settur í með réttum hætti getur það valdið því að heit
eldglóð detti niður af grillinu.
• Brennsla á eldsneyti á föstu formi myndar lyktarlaust koleinoxíð
sem getur verið banvænt! Því skal aldrei nota grillið innandyra,
eða færa það inn ef ekki er búið að slökkva að fullu í því.
• Þegar slökkt virðist hafa í kolaeldi geta óbrunnar eldglæður
geymt hita í allt að 24 klukkustundir og ef þær komast í
snertingu við ferskloft getur kviknað óvænt í þeim. Allar slíkar
eldglæður utan við eldhólf grillsins skapa hættu á eldsvoða og
geta kveikt í eldfimu yfirborði eins og viðarpöllum.
• Ef leiðbeiningar eru ekki lesnar um kveikingu í viðarkolum eða
þeim ekki fylgt getur það leitt til alvarlegs líkams- og eða
eignatjóns.
• Sýnið ávallt varúð við meðhöndlun á heitum kolum til að koma í
veg fyrir meiðsli.
• Kveikið ávallt upp í grillinu með grilllokið opið.
Viðhald
MÁLIÐ ALDREI GRILLIÐ AÐ INNANVERÐU!
Tíðni þrifa fer eftir hversu oft grillið er notað.
Gangið úr skugga um að slökkt hafi verið að fullu í kolum áður en
grillið er þrifið að innanverðu. Skolið vandlega með vatni og látið
þorna að fullu áður en grillið er notað á ný. Þurrkið grilli að
innanverðu með klút eða pappírsþurrkum. Þegar eldamennsku lýkur
og grillið hefur kólnað niður í fullnægjandi hita skal hreinsa út alla
ösku. Aska safnar í sig raka sem getur valdið ótímabæru ryði og
skemmdum.
Ef stífur bursti er notaður til að þrífa eldunaryfirborð skal gæta þess
að engar leifar úr burstanum standi eftir á eldunaryfirborðinu áður en
grillað er. Ekki er ráðlagt að þrífa eldunaryfirborðið á heitu grilli.
Praat mee over dit product
Laat hier weten wat jij vindt van de Char-Broil 18309001 Kettleman Barbecue. Als je een vraag hebt, lees dan eerst zorgvuldig de handleiding door. Een handleiding aanvragen kan via ons contactformulier.